Sinntu ekki fyrirmælum Gæslunnar

Tveir skipverjar voru færðir til sýnatöku í dag en þeir eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum við stjórn handfærabáts sem Landhelgisgæslan hafði afskipti af nú síðdegis. Gæslan hafði vísað bátnum til hafnar í gær en skipverjar sinntu ekki fyrirmælum.

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kom að bátnum í eftirlitsferð sinni í gær. Þá hafði stjórnstöð Gæslunnar orðið bátsins vör í eftirlitskerfum og orðið þess áskynja að ekki var allt með felldu varðandi haffærni og lögskráningu bátsins.

„Áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar gaf skipverjum bátsins þegar fyrirmæli um að halda í land en þrátt fyrir ítrekuð fyrirmæli áhafnarinnar sem og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar sinntu skipverjar bátsins ekki þeim fyrirmælum,“ segir í tilkynningu frá Gæslunni.

„Það var því í dag sem þyrla Landhelgisgæslunnar var send á Norðurfjörð á Ströndum og í samstarfi við lögregluna á Vestfjörðum tóku stýrimaður í áhöfn þyrlunnar, sem jafnframt er handhafi lögregluvalds, og lögreglan á móti handfærabátnum er hann kom til hafnar um fimmleytið í dag. Vaknaði þá þegar grunur um að skipverjar væru ekki allsgáðir og var því ákveðið að flytja þá með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Hólmavíkur til sýnatöku.

Málið mun nú fara til frekari úrvinnslu hjá Landhelgisgæslunni og lögreglu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert