Lögregla rannsakar vespuþjófnaði

Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Fjórum bensín- og rafmagnsvespum var stolið í Kópavogi í gær. Einni var stolið af lóð Kársnesskóla um tíuleytið í gærmorgun og annarri fyrir utan Menntaskólann í Kópavogi einhvern tímann á milli 8.15 og 10.20.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu, sem hefur þjófnaðina til rannsóknar.

„Báðum vespunum var læst með keðju sem þjófurinn, eða þjófarnir, klippti í sundur. Jafnframt var klippt á keðju á annarri vespu við Kársnesskóla, en vespan var ekki tekin. Síðdegis var svo tveimur öðrum vespum stolið utan við íþróttahúsið í Digranesi, en önnur þeirra var læst við staur sem þar er. Þetta mun hafa gerst á tímabilinu frá kl. 16.30 – 19.30. Lögreglan biður þá sem geta varpað ljósi á þjófnaðina að hafa samband, en upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnarh@lrh.is í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu embættisins eða í síma lögreglunnar 444 1000.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert