Þorsteinn hverfur af Alþingi

Þorsteinn bauð sig fram í 1. sæti á lista Framsóknar …
Þorsteinn bauð sig fram í 1. sæti á lista Framsóknar fyrir Reykjavíkurkjördæmi norður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, verður ekki á lista flokksins í komandi kosningum. Þetta varð ljóst um leið og úrslit lágu fyrir á tvöföldu kjördæmaþingi framsóknarmanna í Reykjavík fyrr í dag.

Þorsteinn hafði boðið sig fram í 1. sæti listans í Reykjavíkurkjördæmi norður en svo fór að Karl Garðarsson alþingismaður hlaut 57% atkvæða í sætið, en Þorsteinn 43%. Þar sem hann bauð sig ekki fram í önnur sæti tekur hann ekki sæti á listanum.

Í samtali við mbl.is segist Þorsteinn hafa vitað fyrir fram að mjótt yrði á munum.

„Það lá alltaf fyrir að það yrði svo. Ég gerði mér alltaf grein fyrir því að þetta gæti farið á hvorn veginn sem var. En þetta varð niðurstaðan og ég sætti mig við hana.“

Flutti sig um kjördæmi fyrir kjördæmaþingið

Í síðustu alþingiskosningum var Þorsteinn þriðji maður á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi, en ákvað að þessu sinni að bjóða sig fram í höfuðborginni.

„Ég hafði fengið veður af nokkrum áhuga á því að ég myndi gera það, auk þess sem tveir reynslumiklir þingmenn eru að hætta, þau Frosti [Sigurjónsson] og Sigrún [Magnúsdóttir], og ég vildi gera mitt til að fylla upp í það skarð.

Þá hef ég, eins og margir aðrir, miklar áhyggjur af höfuðborg Íslands og tel að henni veitti ekki af vinum á þessum tímum.“

Þorsteinn á þingi í vetur.
Þorsteinn á þingi í vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sextíu ára reynsla af veru utan þings

Spurður hvað taki nú við segir hann það ekki víst.

„Eitthvað skemmtilegt hugsa ég. Ég hef tæplega sextíu ára reynslu af því að vera ekki á þingi, svo líf mitt hefur ekki alveg snúist um það. Ég kann það mjög vel að vera ekki á þingi. Þetta er eins og með allt annað í lífinu, maður hættir í einhverju og byrjar á einhverju öðru.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert