Gæslan sótti veikan á Snæfellsnes

Um kl. 14 í dag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um þyrlu vegna veiks einstaklings á utanverðu Snæfellsnesi. Þyrla Gæslunnar, TF-SYN, fór í loftið skömmu seinna og sótti sjúklinginn. Lenti þyrlan með sjúklinginn við Landspítala – háskólasjúkrahús um kl. 15.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert