Reyndu að lauma sér um borð

Piltarnir voru að reyna að komast um borð í erlent …
Piltarnir voru að reyna að komast um borð í erlent skemmtiferðaskip. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir erlendir menn, sagðir 16 og 17 ára, voru handteknir við Skarfabakka um kl. 12 í dag þar sem þeir voru að reyna að komast um borð í erlent skemmtiferðaskip. Drengirnir voru komnir inn á lokað svæði við skipið og voru að reyna að komast um borð þegar þeir náðust.

Þeir voru vistaðir í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Barnavernd hefur verið tilkynnt um drengina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert