Þorgerður Katrín ekki tekið neina ákvörðun

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrr­ver­andi mennta­málaráðherra og þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, segist ekki hafa tekið neina ákvörðun um um að gefa kost á sér fyrir Viðreisn í komandi kosningum. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um breytingar hjá mér,“ segir Þorgerður Katrín í samtali við mbl.is.

Styrmir Gunnarsson, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðsins, sagði í útvarpsþættinum Vikulokum á Rás 1 í gær að mögulegt framboð Þorgerðar Katrínar fyrir Viðreisn yrði sterkur leikur fyrir flokkinn en nokkuð hef­ur verið rætt um þann mögu­leika að Þor­gerður Katrín gangi til liðs við Viðreisn.

Frétt mbl.is: Framboð Þorsteins og Pawel erfið fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

„Mér þykir afar vænt um orð Styrmis,“ segir Þorgerður Katrín, sem kveðst meta Styrmi mikils og hafi alltaf gert en hún hafi þó ekki tekið neina ákvörðun um framboð. „Ég er bara í vinnu hjá Samtökum atvinnulífsins og þannig er það,“ segir Þorgerður Katrín.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert