Ekið á stúlku í Hlíðunum

Sjúkrabíll var kallaður á vettvang.
Sjúkrabíll var kallaður á vettvang. mbl.is/Hjörtur

Ekið var á stúlku við Menntaskólann í Hamrahlíð nú í hádeginu. Sjúkrabíll var kallaður á vettvang en meiðsli stúlkunnar eru ekki alvarleg.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var keyrt á gangandi vegfaranda í Hamrahlíðinni. Viðkomandi var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans en meiðslin eru talin minniháttar.

Ekki er nánar vitað um tildrög slyssins að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert