Ítrekar stuðning við Sigmund

Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ítrekaði stuðning sinn við Sigmund Davíð Gunnlaugsson í yfirlitsræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins sem nú stendur yfir.

„Við þurfum ekki formann sem horfir í baksýnisspegilinn,“ sagði Gunnar Bragi meðal annars í ræðunni og hrósaði hann jafnframt Lilju Dögg Alfreðsdóttur utanríkisráðherra fyrir dyggan stuðning sinn við formanninn.

Gunnar Bragi gefur kost á sér sem ritari flokksins en kosið verður um forystuna á þinginu á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert