Tvöfaldur pottur næst

Lottó
Lottó

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóútdrætti vikunnar og verður potturinn því tvöfaldur í næsta laugardag.

Sex voru með fjórar réttar tölur í Jókernum og hlýtur hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning.

Miðarnir voru keyptir í Samkaup Strax á Laugarvatni, Olís Stykkishólmi og fjórir í áskrift. Alls hlutu rúmlega 44.255 miðaeigendur vinninga í þessum útdrætti. Rúmlega 7,2 milljónir króna eru í pottinum.

Lottótölur kvöldsins eru: 1, 9, 17, 28 og 34. Bónustalan er 22.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert