Tómum matarvagni stolið

mbl.is/Þórður

Tilkynnt var um þjófnað á tómum matarvagni sem staðsettur hafði verið fyrir framan leikskóla í hverfi 104 í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Skömmu fyrir hádegi var einnig tilkynnt um vinnuslys í byggingavöruverslun í sama borgarhluta. Starfsmaður hlaut áverka á hendi og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til aðhlynningar.

Tvær tilkynningar bárust í dag um unga pilta sem voru að kveikja eld í rusli. Annars vegar í bílageymslu við verslun í Hafnarfirði og hins vegar í gámi við skóla í Breiðholti. Gámurinn varð alelda. Piltarnir voru allir undir lögaldri og voru sóttir af foreldrum sínum til lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert