Einn með fyrsta vinning í EuroJackpot

Einn var með fyrsta vinning er dregið var í EuroJackpot happ­drætt­inu í kvöld en fyrsti vinn­ing­ur nam 1,314.113.800 krón­um að þessu sinni og var sá miði keyptur í Þýskalandi. Vinningstölurnar voru 14, 16, 28, 34, 35 og stjörnutölurnar voru 3 og 9.

Sex hlutu ann­an vinn­ing og fékk hver í sinn hlut rúm­ar 27 millj­ón­ir króna, en þeir miðar voru seld­ir í Danmörku, Noregi, Finnlandi, Tékklandi, Ítalíu og Þýskalandi.

Átta hlutu þriðja vinning sem nam rúmum 7 milljónum og var einn miðanna seldur í Danmörku en hinir sjö í Þýskalandi.

Enginn var með allar tölur réttar í Jókernum að þessu sinni, né heldur fjórar réttar tölur og voru  jókertölur kvöldsins  5, 6, 1, 1 og 3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert