Slökkviliðið á Akureyri var kallað að Kaffibrennslunni við Tryggvagötu á Akureyri á áttunda tímanum í kvöld eftir að eldur kom upp í afmörkuðum hluta þaks hússins, sem unnið hafði verið að framkvæmdum í fyrr um daginn.
Eldurinn náði að sögn lögreglunnar á Akureyri hvergi inn í húsið, en það var þó vel reykræst eftir að búið var að slökkva eldinn, sem olli litlum skemmdum á þakinu.