Óska vitna að árekstri

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð í Skeifunni í Reykjavík aðfaranótt laugardags, 22. október, um kl. 1.15. Þar var fólksbíl ekið á biðskyldumerki við Skeifuna 4, en ökumaðurinn ók strax af vettvangi.

Þeir sem urðu vitni að óhappinu eða geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á skrifstofutíma í síma 444 1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið hallur.hallsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert