Réttindalaus í hraðakstri

Rúmlega þrítugur ökumaður sem mældist um helgina á 121 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund reyndist einungis hafa réttindi til að aka bifhjóli þegar lögreglan á Suðurnesjum bað hann um ökuskírteini.

Átta ökumenn til viðbótar voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina, þar af einn sem ók á 137 km hraða eftir Reykjanesbrautinni.

Þá voru höfð afskipti af einum ökumanni vegna gruns um að hann væri ölvaður undir stýri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert