9,6% íbúanna eru innflytjendur

Innflytjendur auðga mannlífið á Íslandi en alls eru innflytjendur um …
Innflytjendur auðga mannlífið á Íslandi en alls eru innflytjendur um 10% af íbúum landsins. mbl.is/Rax

Alls eru búsettir á Íslandi tæplega 32 þúsund innflytjendur, eða 9,6% mannfjöldans. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofu Íslands. 

Hinn 1. janúar 2016 voru 31.812 innflytjendur á Íslandi, eða 9,6% mannfjöldans. Það er fjölgun frá því í fyrra, þegar þeir voru 8,9% landsmanna (29.192). Fjölgun innflytjenda heldur því áfram, en frá árinu 2012 hefur þeim fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans upp í 9,6%. Annarri kynslóð innflytjenda fjölgaði einnig á milli ára, voru 3.846 í fyrra en 4.158 nú. Samanlagt er fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 10,8% af mannfjöldanum og hefur það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru 6,6% mannfjöldans í fyrra en 6,7% nú.

Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda er einstaklingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga foreldra sem báðir eru innflytjendur. Fólk er talið hafa erlendan bakgrunn ef annað foreldrið er erlent. Einstaklingur sem fæddist erlendis en á foreldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bakgrunn.

Flestir koma frá Póllandi

Eins og síðustu ár eru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Hinn 1. janúar síðastliðinn voru 11.988 einstaklingar frá Póllandi, eða 37,7% allra innflytjenda. Þar á eftir koma innflytjendur frá Litháen (5,1%) og Filippseyjum (4,8%). Pólskir karlar eru 41,5% allra karlkyns innflytjenda, eða 6.519 af 15.707. Litháískir karlar eru næstfjölmennastir (5,3%) og síðan karlar með uppruna frá Bretlandi (3,6%). Pólskar konur eru 34% kvenkyns innflytjenda og næst á eftir þeim eru konur frá Filippseyjum (6,5%), þá konur frá Þýskalandi og Taílandi (4,9%).

Á Suðurnesjum eru 16% mannfjöldans innflytjendur

Hinn 1. janúar síðastliðinn bjuggu 23.707 fyrstu og annarrar kynslóðar innflytjendur á höfuðborgarsvæðinu, eða 65,9% allra innflytjenda á landinu. Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum, en þar voru 16,0% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst er hlutfallið á Vestfjörðum, þar sem 14,1% mannfjöldans var innflytjendur eða börn þeirra. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra, en þar var 5,1% mannfjöldans innflytjendur eða börn þeirra.

Í fyrra fékk 801 einstaklingur íslenskan ríkisborgararétt og er það mikil fjölgun frá fyrra ári, þegar 595 einstaklingar fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu langflestir verið með ríkisfang frá Póllandi, eða 265, og næstflestir verið með ríkisfang frá Filippseyjum (74). Árið 1991 fengu fleiri karlar en konur íslenskt ríkisfang en á hverju ári eftir það hafa konur verið í meirihluta nýrra íslenskra ríkisborgara. Það átti einnig við í fyrra, þegar 483 konur fengu íslenskan ríkisborgararétt en 318 karlar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert