Ofbeldismaður komst undan

Þrjú heimilisofbeldismál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í tveimur tilvikum voru ofbeldismennirnir vistaðir í fangageymslum lögreglu. Sá þriðji komst hins vegar undan lögreglu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar í dag.

Um miðnætti stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu för tveggja ökumanna sem voru undir áhrifum fíkniefna. Þeir voru handteknir og færðir á lögreglustöð í sýnatöku. Að lokinni sýnatöku voru þeir látnir lausir.

Lögreglan fjarlægði skráningarmerki af tveimur bifreiðum vegna vangoldinna trygginga og vegna vanrækslu við að færa ökutæki til aðalskoðunar á kvöld- og næturvaktinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert