Kokkalandsliðið fékk ein gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fóru fram í Þýskalandi.
Singapúr var sigurvegari Ólympíuleikanna í samanlögðum stigum, Finnland var í öðru sæti og Sviss í þriðja sæti. Á leikunum er keppt í mörgum greinum og var Ísland í 3. sæti landsliða í eftirréttum, eða „Culinary Pastry Art“, að því er kemur fram í tilkynningu.
Kokkalandsliðið vann silfurverðlaun fyrir heita matinn á Ólympíuleikunum eftir frammistöðu sína í keppninni í gærkvöldi. Landsliðið hafði 6 klukkustundir til að matreiða þriggja rétta máltíð fyrir dómara og 110 gesti.
Frétt mbl.is: Máltíð fyrir 110 manns á 6 tímum
„Við erum mjög ánægð með þennan árangur. Liðið stóð sig vel í keppninni í gær og silfurverðlaunin staðfesta að við erum með mjög sterkt og vel æft lið sem vinnur vel saman,“ segir Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari liðsins, í tilkynningunni.
„Við höfum lagt áherslu á að nota hágæða íslenskt hráefni. Þetta hefur fallið vel í kramið hjá dómurunum. Í dómgæslunni er ekki bara bragð, útlit, samsetning og hráefnisval metið heldur er einnig tekið mið af fagmennsku við undirbúning og hvernig liðið vinnur saman að matargerðinni í keppniseldhúsinu. Í þeim þáttum stóð liðið sig einnig vel. “
Þráinn Freyr bætir við að mikilvægt sé fyrir kokkalandsliðið að hafa öfluga aðila sem styðji við bakið á því. Hann þakkar öllum þeim bakhjörlum og samstarfsaðilum sem lögðu sitt af mörkum til að landsliðið gæti tekið þátt í keppninni.
„Við erum að keppa við fjölmennar þjóðir sem leggja mikið undir og því er árangurinn sem við náðum enn eftirtektarverðari. Þessi glæsilegi árangur liðsins gefur okkur möguleika á að efla liðið enn frekar fyrir næstu keppnisþátttöku.“
Í kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri liðsins, Þráinn Freyr Vigfússon þjálfari, Bjarni Siguróli Jakobsson fyrirliði, Björn Bragi Bragason, forseti KM/framkvæmdastjórn, Steinn Óskar Sigurðsson liðsstjóri, Jóhannes Steinn Jóhannesson liðsstjóri, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn Ólafsson, Axel Clausen, Garðar Kári Garðarsson, Hrafnkell Sigríðarson, Atli Þór Erlendsson, Sigurður Ágústsson, Georg Arnar Halldórsson og María Shramko.