Gylfi endurkjörinn forseti ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arnbjörnsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Gylfi Arnbjörnsson var endurkjörinn forseti Alþýðusambands Íslands á þingi sambandsins í dag. Engin mótframboð bárust þegar forseta- og varaforsetakjör fór fram og voru þeir því endurkjörnir með dynjandi lófaklappi.

Um 300 fulltrúar sátu þingið.

Í frétt á vef ASÍ segir að Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, verði 1. varaforseti sambandsins næstu tvö árin og Sigurður Bessason, formaður Eflingar, 2. varaforseti.

Engar breytingar urðu á miðstjórn ASÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert