Suðurlandsvegi lokað vegna óhapps

Lögreglan á Suðurlandi hefur lokað Suðurlandsvegi við Rauðalæk í Rangárþingi ytra vegna umferðaróhapps. Umferð er beint um hjáleið, þ.e. um Landveg (26) og Árbæjarveg (271).

Ekki er vitað hvað lokunin varir lengi og þá segir í tilkynningu frá lögreglu að ekki sé hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu.

Uppfært kl. 13.00:

Vegurinn hefur verið opnaður á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert