Vatnsleki í Vonarstræti

Slökkvilið höfuborgarsvæðisins fór í útkall í Vonarstræti.
Slökkvilið höfuborgarsvæðisins fór í útkall í Vonarstræti. mbl.is/Árni Sæberg

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að húsi í Vonarstræti um klukkan 23.20 í kvöld vegna vatnsleka. Þar hafði rör farið í sundur.

Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins var búið að loka fyrir vatnið þegar lagt var af stað í útkallið. Lekinn varð í kjallara og var vatnið um ökkladjúpt þegar slökkviliðið mætti á staðinn.

Að sögn slökkviliðsins fer félagsstarfsemi fram í húsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert