Straumlaust í Stykkishólmi

Straumlaust varð í Stykkishólmi og nærsveitum.
Straumlaust varð í Stykkishólmi og nærsveitum. Kort/map.is

Rafmagnslaust varð nú í kvöld á ellefta tímanum í Stykkishólmi og nærsveitum. Bilun varð í háspennudreifikerfi Rarik í Stykkishólmi í um hálfa klukkustund.

Búið er að finna bilunina og er rafmagn komið á aftur, að því er segir í tilkynningu frá RARIK.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert