Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, hefur boðað formenn þingflokkanna á fund í stjórnarráðinu klukkan 11 í dag. Að sögn upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar verða störf þingsins framundan rædd.
Alþingi verður kallað saman á morgun klukkan 13.30. Þar verður fjárlagafrumvarpið tekið fyrir.
„Það er tímabært að Alþingi komi saman svo tími gefist til þinglegrar meðferðar fjárlaga og mála sem þeim tengjast. Þótt skammur tími sé til stefnu tel ég að með góðri samvinnu verði hægt að ljúka umfjöllun um þau á tilsettum tíma,“ sagði Sigurður Ingi í tilkynningu sem var send út til fjölmiðla fyrir helgi.