Mikið álag á Landspítalanum

Landspítali – háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Landspítali – háskólasjúkrahús við Hringbraut. mbl.is/Ómar Óskarsson

Mikið álag er á Landspítalanum en fjöldi sjúklinga hefur leitað þangað síðustu daga og hefur meðal annars greinst inflúensa. Kemur þetta fram í tilkynningu frá spítalanum.

Kemur þar enn fremur fram að sjúklingum sé forgangsraðað eftir bráðleika. Má því gera ráð fyrir því að við þær aðstæður sem nú eru uppi á spítalanum megi gera ráð fyrir því að þeir sem ekki eru í bráðri þörf þurfi að bíða þjónustu eða verði vísað á heilsugæslustöðvar eða Læknavakt að forflokkun lokinni.

Flestar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu bjóða opna síðdegismóttöku og Læknavaktin á Smáratorgi er opin til kl. 23.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert