Rannsókn málsins miðar vel

Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraflutningamanna var við Fellsmúla í síðustu …
Fjölmennt lið lögreglu og sjúkraflutningamanna var við Fellsmúla í síðustu viku þegar maðurinn, sem haldið var föngnum, losnaði. mbl.is

Nokkrir hafa verið yfirheyrðir í þágu rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á frelsissviptingu í austurborginni fyrir helgina, en grunur leikur á að karli um þrítugt hafi verið haldið föngnum í íbúð í fjölbýlishúsi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Maðurinn, sem haldið var föngnum í íbúð í Fellsmúla, losnaði úr prísundinni þegar honum tókst að komast út á svalir og þaðan yfir í aðra íbúð.

Tveir karlar voru handteknir nærri vettvangi, en þeir reyndust ekki viðriðnir málið og var sleppt fljótlega. Síðar voru húsráðendur umræddrar íbúðar, karl og kona, handteknir en þeim var sömuleiðis sleppt úr haldi lögreglu eftir yfirheyrslur.

Rannsókn málsins miðar vel, en þess má geta að áverkar brotaþola reyndust mun minni en óttast var í fyrstu.

Frétt mbl.is: Enginn handtekinn en nokkrir yfirheyrðir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert