Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni, sem grunaður er um að hafa rænt fjögur apótek á síðastliðnum rúmum tveimur mánuðum.
Eins og mbl.is hefur áður greint frá úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi fram til 28. desember. Þeim úrskurði var þó áfrýjað af verjanda mannsins, en hefur nú verið staðfestur.
Frétt mbl.is: Í gæsluvarðhald til 28. desember
Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir í samtali við mbl.is að rannsókn málsins sé á lokastigi. Áframhaldandi varðhalds hafi þá verið óskað vegna almannahagsmuna, þar sem hætta þykir á frekari ránum fái maðurinn að ganga laus.
Fyrsta ránið, sem maðurinn er grunaður um að hafa framið, átti sér stað í bílaapótekinu í Kópavogi 26. september, eins og mbl.is greindi frá samdægurs. Maður sem huldi andlit sitt kom þar inn vopnaður hníf og ógnaði starfsfólki, sagði Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri í Kópavogi.
Rúmur mánuður leið þar til næst var framið rán í apóteki hér á landi, en það var 5. nóvember í Suðurveri í Reykjavík. Þar ógnaði grímuklæddur maður starfsfólki með hníf, en að sögn lögreglu hafði maðurinn á brott með sér bæði lyf og peninga.
Þá var hann sagður hafa verið í annarlegu ástandi og taldi lögregla að hann hefði komist í burtu fótgangandi.
Degi síðar greindi mbl.is frá því að rannsókn málsins væri í járnum. Lögregla hafði þá haft einn undir grun en sá reyndist ekki sekur.
Aðeins fjórum dögum eftir ránið í Suðurveri, eða að kvöldi dags níunda nóvember, var par handtekið á flótta eftir rán í Apóteki Ólafsvíkur. Var bifreið parsins stöðvuð á Snæfellsnesvegi skammt frá Haffjarðará, en lögreglumenn á Akranesi höfðu verið kallaðir út til að keyra á móti parinu og stöðva það, sem þeir gerðu. Konan var þá sögð íslensk.
Ólafur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vesturlandi, sagði þá í samtali við mbl.is að maðurinn hefði ógnað starfsfólki apóteksins með hníf og náð að taka á brott með sér lyf.
Loks var maðurinn, ásamt konu, handtekinn eftir vopnað rán í Apóteki Suðurnesja við Hringbraut í Keflavík.