Vilja að MAST upplýsi um framleiðslufrávik

Samtök verslunar og þjónustu telja MAST hafa brugðist eftirlitsskyldu sinni …
Samtök verslunar og þjónustu telja MAST hafa brugðist eftirlitsskyldu sinni og gagnrýna að neytendur og verslanir fái ekki að vita um framleiðslufrávik hjá íslenskum matvælaframleiðendum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samtök verslunar og þjónustu og Neytendasamtökin gagnrýna matvælaeftirlit Matvælastofnunnar (MAST) og fara fram á að stofnunin upplýsi um alvarleg frávik sem komið hafa upp í eftirlitsstarfsemi stofnunarinnar með íslenskum matvælaframleiðendum.

Í fréttatilkynningu frá SVÞ og Neytendasamtökunum segir að fréttaflutningur af eftirliti MAST með Brúneggjum sýni að MAST hafi brugðist alfarið eftirlitshlutverk sínu. „Þrátt fyrir að starfsemin hafi verið til skoðunar hjá MAST í tæp tíu ár og aðfinnslur hafi verið gerðar við þá starfsemi var hvorki verslun né neytendum veittar upplýsingar um þá meinbugi sem nú hafa komið í ljós,“ segir í tilkynningunni.

Með þögn sinni um málið hafi MAST vegið alvarlega að hagsmunum verslana og neytenda, „sem í skjóli núverandi fyrirkomulags treysta á faglega starfsemi þeirra aðila sem lögum samkvæmt hefur verið falið eftirlit með matvælaframleiðslu. Á meðan engar athugasemdir berast frá eftirlitsaðila um tiltekna starfsemi eru verslun og neytendur því í góðri trú um að þau matvæli standist allar þær kröfur sem gerðar eru til hennar.“

Umfjöllunin hafi vakið upp áleitnar spurningar um matvælaeftirlit MAST og það traust sem eigi að ríkja um eftirlitsstarfsemi stofnunarinnar. Enn fremur sé gagnrýnisvert að hagmunir neytenda og verslana hafi vikið fyrir hagsmunum innlendrar matvælaframleiðslu.

Þetta valdi trúnaðarbresti, ekki hvað síst þar sem MAST hafi heimilað afhendingu á matvælum til verslana og neytenda þrátt fyrir að búa yfir upplýsingum um margvísleg brot gegn löggjöf um matvæli og aðbúnað dýra.

„Í ljósi þessa hafa Neytendasamtökin og SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sent sameiginlegt erindi á MAST þar sem óskað er upplýsinga frá stofnuninni um öll alvarleg frávik í innlendri eftirlitsskyldri matvælaframleiðslu sem hún hefur gert athugasemdir við í eftirlitsstörfum sínum. Er óskað eftir upplýsingum aftur til 1. janúar 2008,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert