Beitti hnífi í slagsmálum

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst skömmu eftir miðnætti tilkynning um heimilisófrið í Breiðholtinu. Er á staðinn var komið reyndust þar vera í gangi slagsmál tveggja erlendra einstaklinga og beitti annar þeirra fyrir sig hnífi í átökunum.

Lögregla yfirbugaði gerandann sem fékk að gista í fangageymslum lögreglu í nótt. Óverulegir áverkar voru á þeim sem fyrir hnífnum varð í átökunum, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert