Sýndi barnabarni sínu kynfærin

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is

Karlmaður var í dag dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa sært blygðunarsemi fjögurra ára gamals barnabarns síns. Maðurinn leyfði stúlkunni að skoða kynfæri sín undir sæng sem hann hafði yfir sér og notaði til þess vasaljós.

Fram kemur í dómnum að með háttsemi sinni hafi maðurinn sýnt lostugt og ósiðlegt athæfi sem hafi verið til þess fallið að særa blygðunarsemi stúlkunnar. Enn fremur kemur fram að maðurinn hafi skýlaust játað brot sitt en hann hafi verið undir áhrifum þegar brotið var framið sem þó afsaki ekki gjörðir hans. Þá hafi hann glímt við þunglyndi í kjölfar brotsins.

Til þyngingar var horft til þess að brot mannsins beindist gegn ungu barnabarni hans sem honum var treyst fyrir. Auk 60 daga fangelsisdóms, sem fellur niður að tveimur árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð, var hann dæmdur til þess að greiða stúlkunni 300 þúsund krónur í miskabætur með vöxtum auk málskostnaðar upp á 510 þúsund krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert