Gagnrýna hækkanir hjá borginni

Algeng hækkun á milli ára hjá Reykjavíkurborg er frá tæplega …
Algeng hækkun á milli ára hjá Reykjavíkurborg er frá tæplega 10% og upp undir 30-40%. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Við erum verulega ósátt við þessar hækkanir, umfram verðlagsþróun, á sama tíma og við erum að leita allra leiða til að draga úr byggingarkostnaði,“ segir Árni Jóhannsson, forstöðumaður bygginga- og mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, um þær verðhækkanir sem Reykjavíkurborg hefur boðað hjá umhverfis- og skipulagssviði um áramót.

Ýmis gjöld sem rukkuð eru fyrir t.d. byggingarleyfi, skipulagsvinnu, eftirlit, úttektir og vottorð hækka töluvert umfram verðlagsþróun þessa árs. Algeng hækkun á milli ára er frá tæplega 10% og upp undir 30-40%. Dæmi eru um meiri hækkanir á einstökum gjöldum. Þá eru sett á nokkur ný gjöld.

Í greinargerð borgarstjóra með tillögu að gjaldskrárbreytingum segir að gjaldskrár umhverfis- og skipulagssviðs eigi að endurspegla raunkostnað. Um síðustu áramót urðu einnig hækkanir á ýmsum gjöldum á þessu sviði borgarinnar, sem komu hart niður á byggingarverktökum og íbúðareigendum.

„Þetta mun að sjálfsögðu fara út í íbúðaverðið og er ekki til þess fallið að auka framboð á nýju húsnæði, sem allir eru sammála um að full þörf sé fyrir, sér í lagi fyrir ungt fólk og kaupendur fyrstu íbúðar. Þetta styður því ekki við þá viðleitni að auka framboðið,“ segir Árni enn fremur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert