Harður árekstur við Vesturlandsveg

Harður árekstur varð þar sem Vesturlandsvegur mætir Þverholti í Mosfellsbænum um hálfeittleytið í dag. Búið er að loka hringtorgi á staðnum fyrir umferð og eru lögregla og sjúkrabílar komin á vettvang.

Ekki verða veittar frekari upplýsingar af slysinu að svo stöddu að sögn lögreglunnar á Vínlandsleið. Ökumönnum er þó bent á að töluverðar tafir geta orðið á umferð á þessum hluta Vesturlandsvegar.

Uppfært: 13:20

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru þrír einstaklingar í bílunum sem lentu í árekstrinum og var einn þeirra fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann til frekari aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert