Öryggi íbúa og vegfarenda skerðist

Skógafoss er einn af fjölsóttum ferðamannastöðum á Suðurlandi.
Skógafoss er einn af fjölsóttum ferðamannastöðum á Suðurlandi. mbl.is/Rax

Í fjárlögum ársins 2017 eru lögð niður fjárframlög til eflingar löggæslu í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Lækkunin nemur um 10% heildarfjárheimilda lögreglunnar á Suðurlandi eða um 102 milljónum króna. „Sveitarstjórn Rangárþings eystra lýsir vonbrigðum“ með þessa ákvörðun. Þetta kemur fram í ályktun sveitarstjórnar Rangárþings eystra, vegna eflingar löggæslu, sem var lögð fram á fundi sveitarstjórnarinnar í dag.

Í ályktuninni kemur fram að umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi sé mjög stórt. Þar eru vinsælustu ferðamannastaðir í byggð og óbyggð. „Þegar litið er til aukinnar umferðar, fjölgunar slysa er þessi niðurstaða með öllu óásættanleg enda skerðist verulega hvort tveggja, öryggi íbúa umdæmisins og annarra vegfarenda,“ segir enn fremur í ályktuninni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert