Stjörnuhrap ekki neyðarblys

Mynd úr safni – neyðarblys.
Mynd úr safni – neyðarblys. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Tilkynnt var til Landhelgisgæslunnar um mögulegt neyðarblys í Berufirði um hálftólf í gærkvöldi. 

Starfsmenn Landhelgisgæslunnar höfðu samband við nærliggjandi skip en enginn kannaðist við að hafa séð til neyðarblyss né heldur er skips eða báts saknað. 

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er talið öruggt að ekki hafi verið um neyðarblys að ræða heldur stjörnuhrap en spáð er mikilli loftsteinadrífu hér við land næstu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert