Hægt að skíða í Skagafirði

Skíðasvæðið Tindastóls við Sauðárkrók verður opið í dag frá klukkan 11:00 til 16:00 samkvæmt tilkynningu frá starfsmönnum svæðisins.

Þar segir að veðrið sé heiðskírt, 8 metrar á sekúndu og 3,5 gráðu hiti.

„Töfrateppið fer í gang í dag og náum jafnvel að opna norðurbrekkuna í dag líka, svo við sjáumst þá með bros á vör.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert