Veðrið verður áfram milt

Veðurspáin næsta sólarhringinn gerir ráð fyrir því að veðrið verði áfram milt á landinu. Spáð er norðaustanátt, 5-13 metrum á sekúndu en 10-18 á annesjum norðvestan til á landinu og við ströndina suðaustanlands fram eftir degi.

Lengst af verði þurrt vestanlands en annars súld eða rigning. Hiti á bilinu 1-10 stig, hlýjast syðst. 

Spáin fyrir morgundaginn gerir ráð fyrir 8-18 m/s, hvassast á Suðvestur- og Vesturlandi en lægir eftir hádegi. Víða rigning en þurrt á norðaustanverðu landinu fram á kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert