Eltu lögregluna frá Hafnarfirði á Hverfisgötu

Polar Nanoq siglir inn til Hafnarfjarðar í kvöld.
Polar Nanoq siglir inn til Hafnarfjarðar í kvöld. Ómar Óskarsson

Tugir bíla eltu lögreglubíla, sem fluttu þrjá grænlenska skipverja af grænlenska togaranum Polar Nanoq, frá Hafnarfjarðarhöfn til yfirheyrslna á lögreglustöðinni við Hverfisgötu skömmu eftir miðnætti. Lögregla setti bláu ljósin á og ók í forgangsakstri.

Blaðamaður mbl.is var á staðnum og segir að fjölmargir hafi ekið yfir á rauðu ljósi til að missa ekki af lögreglubílunum. 

Talsverður mannfjöldi hafði komið saman við Hafnarfjarðarhöfn í kvöld þegar togarinn lagðist þar að bryggju eftir að íslensk lögregluyfirvöld höfðu óskað þess að skipið kæmi hingað til lands eftir að hafa siglt héðan á laugardagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert