Grænlendingar mæti óvild hér á landi

Polar Nanoq lagði að bryggju við Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi. Sjómennirnir …
Polar Nanoq lagði að bryggju við Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi. Sjómennirnir sem um ræðir tengjast málinu ekki á neinn hátt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grænlenska útgerðin Niisa Trawl hefur ákveðið að senda skipverja grænlenska togarans Regina C heim til Grænlands vegna óvildar sem þeir hafa mætt á Íslandi í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur. 

Þetta kemur fram í frétt á vef grænlenska útvarpsins, en þar segir að mennirnir hafi orðið fyrir fordómum í verslun á höfuðborgarsvæðinu og á götum úti. Þetta hafi átt sér stað eftir að fjórir úr áhöfn Polar Nanoq voru handteknir í tengslum við hvarf Birnu.

Sjómennirnir, sem tengjast ekki hvarfi Birnu með neinum hætti, höfðu ætlað sér að kaupa sælgæti og blöð í verslun, þegar þeim var neitað um afgreiðslu og vísað út úr versluninni. 

Svend Christensen, eigandi útgerðarinnar, segir að Grænlendingunum líði eins og þeir séu ekki velkomnir á Íslandi. Sex manns úr áhöfninni hafi verið fluttir til Grænlands í dag. 

„Þeim líður ekki eins og þeir séu velkomnir þegar þeir ganga um götur borgarinnar,“ sagði hann. „Auðvitað á það ekki að bitna á þeim að fólk haldi að allir Grænlendingar séu slæmir.“

Fjölmargir lesendur Grænlenska útvarpsins hafa skilið eftir athugasemdir undir fréttina, og augljóst er að margir þeirra taka tíðindin nærri sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert