Tvær fjölskyldur frá Sýrlandi eru komnar til landsins, en þær eru hluti af hópi flóttamanna sem íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að veita hæli hér á landi.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Rúv.
Fjölskyldurnar hafa dvalið í flóttamannabúðum í Líbanon, alls eru þetta fjórtán manns. Von er á þriðju fjölskyldunni 30. janúar.
Fjölskyldurnar verða á búsettar í Hveragerði og í Árborg.
Fyrr í dag skrifuðu Þorsteinn Víglundsson, félags-og jafnréttismálaráðherra, Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, og Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Árborgar, undir samning um móttöku fólksins.