Ester ráðin framkvæmdastjóri UÍA

Ester S. Sigurðardóttir er nýr framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands …
Ester S. Sigurðardóttir er nýr framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA).

Ester S. Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA). Hún tekur við starfinu af Hildi Bergsdóttur sem hefur gegnt því frá haustinu 2010. Hildur hverfur til annarra starfa í mars.

Ester lauk námi í upplýsingastjórnun frá Portobello Collage á Írlandi. Hún starfaði í áratug hjá Íslenskum aðalverktökum, svo markaðsdeild Fréttablaðsins áður en hún flutti austur á Djúpavog. Þar þjálfaði hún hjá Ungmennafélaginu Neista og kenndi í grunnskólanum.

Síðustu ár hefur hún aðstoðað fyrirtæki við markaðssetningu bæði hér heima og erlendis. Hún hefur verið búsett á Vopnafirði síðan 2014. Ester kemur til starfa um miðjan mars, að því er fram kemur í tilkynningu frá sambandinu. 

„Starfið leggst vel í mig, sérstaklega að takast á við jafn stórt verkefni og bíður UÍA í sumar að halda Unglingalandsmót. Ég veit að kröfurnar eru miklar en er sannfærð um að við verðum öll Austurlandi til sóma,“ er haft eftir henni í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert