Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Þórunni Bjarnadóttur sem fædd er 1925. Hún fór frá dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í dag um kl 14:30.
Þórunn er um það bil 160 sm á hæð með hvítt stuttklippt hár. Hún er klædd í rauðleita yfirhöfn og með hvíta prjónahúfu á höfði. Ekki er vitað um hvernig buxum hún var í.
Þórunn er heilabiluð og því mjög illa áttuð, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Þeim sem geta veitt upplýsingar um Þórunni er bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.
Uppfært:
Þórunn Bjarnadóttir er fundin heil á húfi.