Greint verður frá uppbyggingu í Breiðholtinu, einkum á svæðinu við Mjódd, á íbúafundi annað kvöld. Talsverðar breytingar eru fyrirhugaðar á svæðinu og meðal annars hyggst fyrirtækið Hekla flytja starfsemi sína í nýtt húsnæði í Suður-Mjódd.
Rætt verður um aðalskipulag Breiðholtsins á íbúafundi í Gerðubergi annað kvöld kl. 20.
Á fundinum verður jafnframt gefin heildarmynd af hverfinu og áherslur í aðalskipulagi en sjónum verður sérstaklega beint að uppbyggingu í Suður-Mjódd og deiliskipulagsvinnu sem þar er í gangi, hugmyndum um uppbyggingu í Norður-Mjódd og við Stekkjarbakka.
„Við kynnum stóru myndina sem er aðalskipulagið. Í því er gert ráð fyrir að íbúðir framtíðarinnar verði í vestri og atvinnuuppbygging verði í austri. Við erum einnig að skoða hvort það eigi að færa Garðheima og skoðum uppbyggingu sem á að verða í Norður-Mjódd,“ segir Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg.
Í tengslum við uppbyggingu í Suður-Mjódd mun borgarstjóri fara yfir samning við ÍR og kynna samráðshópa sem borgarráð hefur samþykkt að stofna um eflingu íþróttastarfs í Breiðholti.
Borgarráð samþykkti 26. janúar síðastliðinn viljayfirlýsingu á milli Reykjavíkurborgar og Heklu um lóðarvilyrði til fyrirtækisins fyrir byggingu nýrra höfuðstöðva bílaumboðsins í Syðri-Mjódd sem yrði um 24 þúsund fermetrar að stærð. Yfirlýsingin var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Minnihlutinn í borgarstjórn gagnrýndi að lóðarvilyrði hefði verið samþykkt áður en íbúum og hagsmunaaðilum á svæðinu, Íbúasamtökunum Betra Breiðholt og hverfisráði Breiðholts, yrði gefinn kostur á að skila umsögn um málið.
Eftir kynningu gefst fundargestum kostur á að bera upp fyrirspurnir.