Grunaður um húsbrot og líkamsárás

Lögreglan handtók mann um kvöldmatarleytið í austurhluta Reykjavíkur sem er grunaður um húsbrot og líkamsárás.  Maðurinn er vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn máls.

Tveir voru teknir fyrir akstur bifreiða undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi. Sá fyrri á áttunda tímanum í Kópavogi en sá var einnig án ökuréttinda. Sá seinni var tekinn um eitt í nótt í Hafnarfirði. Hann var einnig með fíkniefni á sér.

Rúmlega átta í gærkvöldi þurfti lögregla að hafa afskipti af manni á heimili í Grafarvogi vegna vörslu og neyslu fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert