Slógust eftir umferðaróhapp

Tilkynnt var til lögreglu um umferðaróhapp á Reykjanesbraut við Arnarnesveg síðdegis í gær. Til handalögmála kom á milli ökumannanna og varð vegfarandi sem kom á vettvang að ganga á milli þeirra. Mennirnir eru 23 ára og 67 ára gamlir.

Þegar lögregla kom á vettvang voru þeir heldur farnir að róast. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu virtist yngri maðurinn ósáttur við hvað sá eldri keyrði hægt á vinstri akrein Reykjanesbrautar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert