Stal þremur „rándýrum“ úlpum

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Búðarþjófi tókst að stela þremur „rándýrum“  úlpum úr verslun í miðbænum í kvöld, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann hljóp á brott án þess að borga fyrir þær.

Þjófnaðurinn var tilkynntur upp úr klukkan hálftíu.  

Laust fyrir klukkan níu í kvöld var tilkynnt um heimilisofbeldi að Hraunbæ.

Að sögn lögreglunnar hafði erlent par átt þar í deilum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert