Menntaskólinn við Hamrahlíð vann Menntaskólann í Reykjavík naumlega í 8-liða úrslitum í spurningakeppninni Gettu betur sem fór fram á Rúv í kvöld.
MH vann með 31 stigi gegn 30 stigum frá MR og er þar með komið í undanúrslit keppninnar.
MH hafði þegar unnið einvígið áður en síðasti spurningaliðurinn, þríþrautin, fór fram.