Óveðrið fyrr á ferðinni

Óveðrið er heldur fyrr á ferðinni en spáð var. Það hefur í för með sér að veður er þegar mjög slæmt á Hellisheiði og Mosfellsheiði. Þar er blint og fer vindur vaxandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Stefnt er að því að loka Hellisheiðinni klukkan 9.

Á Kjalarnesi skefur og þar verða hviður 35-40 m/s frá hádegi. Hvessir fljótlega austur undir Eyjafjöllum og í Mýrdal  og fljótlega hviður þar allt að 40-50 m/s í austanáttinni.  Útlit er fyrir að versni á Reykjanesbraut upp úr kl. 12 og þar vindur um 25 m/s þvert á, með hviðum allt að 35-40 m/s samfara krapa og vatnsaga, segir í frétt á vef Vegagerðarinnar.

Á Holtavöruheiði og Bröttubrekku gerir síðan hríðarveður um miðjan dag. Á Austfjörðum mun smámsaman gera stórhríðarveður og  hvessir með skafrenning austan- og norðaustanlands einnig.  Eins verður hríð á fjallvegum Vestfjarðar þegar kemur fram á daginn. Suðvestanlands má reikna með að það lægi í kjölfar skilanna á milli kl. 16 og 17. 

Snjóþekja  er á Reykjanesbraut, hálkublettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Snjóþekja og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka, hálkublettir og snjóþekja er á flestum leiðum á Suðurlandi. Hálka eða snjóþekja er á Vesturlandi en snjóþekja er á Bröttubrekku.

Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir á flestum leiðum og sumstaðar snjóþekja. Snjóþekja, hálka og éljagangur er á fjallvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Ófært er úr Bjarnarfirði á Ströndum norður í Árneshrepp.

Hálka, hálkublettir, snjóþekja, og éljagangur er á Norðurlandi og sumstaðar snjókoma og jafnvel skafrenningur. Ófært er á Hólasandi en hálka og skafrenningur er á Dettifossvegi.

Á  Austurlandi er hálka, snjóþekja og éljagangur á flestum leiðum og víða skafrenningur. Þungfært er um Fjarðarheiði, Fagradal og Oddskarð. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi. Hálka eða snjóþekja er með Suðausturströndinni.

Fyrirhugaðar lokanir á vegum:

09:00 – 18.00 Eyjaföll og Hellisheiði.

11:00 – 18:00 Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði.

12:00 – 17:00 Reykjanesbraut.

12:00 – 18:00 Kjalarnes og Hafnarfjall.

15:00 – 21:00 Holtavörðuheiði og Brattabrekku.

16:00 og fram á kvöld Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Fjarðarheiði, Fagridalur og Oddsskarð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert