„Þörf áminning“

Hótelstjóri segir lokanir vegna vegna veðurs nauðsynlegar.
Hótelstjóri segir lokanir vegna vegna veðurs nauðsynlegar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Allir farþegar rútunnar sem valt við Freysnes í Öræfum á fjórða tímanum í dag og hlúð var að á Hótel Skaftafelli eru farnir leiðar sinnar. Meiðsl þeirra voru lítilsháttar. Vegurinn hefur verið opnaður á ný enda veðrið gengið niður. 

„Þetta er þörf áminning til okkar um að loka oftar vegum þegar veðrið er svona. Það eru margir sem ferðast um landið sem ekki eru vanir að keyra í vetrarfærð á Íslandi,“ segir Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri á Hótel Skaftafelli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert