Tafir urðu vegna umferðarslyss

mbl.is/Þórður

Miklar umferðartafir urðu á Kringlumýrarbraut í suðurátt við Gjána í Kópavogi vegna umferðaróhapps um klukkan fjögur samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kringlumýrarbrautin hefur nú verið opnuð á ný fyrir umferð.

Var ökumönnum bent á að fara aðrar leiðir meðan á þessu ástandi stóð. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins komu margar bifreiðar við sögu í umferðaróhappinu. Ekki lá fyrir nákvæm tala í þeim efnum en þær munu vera á annan tug.

Ekki mun þó hafa komið til þess að flytja hafi þurft fólk á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert