Bætir vinnuaðstöðu og eykur öryggi

Hafnarnes er stuttur en breiður bátur sem notaður verður við …
Hafnarnes er stuttur en breiður bátur sem notaður verður við fiskeldið hjá Arctic Fish í Dýrafirði. mbl.is/Jón Páll

Nýr vinnubátur fyrir sjókvíaeldi Arctic Fish í Dýrafirði mun gerbreyta vinnuaðstöðu starfsfólks og auka öryggi við eldið.

Báturinn var smíðaður í Póllandi og er sömu gerðar og fiskeldisbátar sem norsk fiskeldisfyrirtæki láta smíða fyrir sig í sömu stöð.

Báturinn er tæplega 15 metra langur og 9 metra breiður. Hann er tvíbytna og er því mjög stöðugur. Þá er hann búinn öflugum krönum og spilum. Hjalti Proppé Antonsson vélstjóri segir að báturinn verði notaður í alla þjónustu við fiskeldisbúnaðinn, til dæmis við taka upp og setja út sjókvíar og flytja fóður út á kvíarnar. Þyngstu stykkin geta vegið hálft annað tonn og því er mikilvægt að hafa stöðugan bát.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert