Fimmtán bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur í þremur flokkum. Tilkynnt var um tilnefndar bækur við hátíðlega athöfn í Gerðubergi í dag.
Tilnefnt var í flokkunum besta frumsamda bókin, best myndskreytta barnabókin og besta þýðing á barnabók. Fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki en allar voru þær gefnar út á árinu 2016
Markmið Barnabókaverðlauna Reykjavíkur er að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir yngstu lesendurna en verðlaunin eiga sér lengsta sögu barnabókaverðlauna á landinu.
Verðlaunin verða afhent í Höfða miðvikudaginn 19. apríl, síðasta vetrardag.
Besta myndskreytta barnabókin á árinu 2016:
Hafsteinn Hafsteinsson fyrir Enginn sá hundinn – útg. Mál og menning
Linda Ólafsdóttir fyrir Íslandsbók barnanna – útg. Iðunn
María Sif Daníelsdóttir fyrir Vísnagull – útg. Tónagull
Lína Rut Wilberg fyrir Þegar næsta sól kemur – útg. NB forlag
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir Ævintýrið af Sölva og Oddi konungi – útg. Töfrahurð
Besta þýðing á barna- og unglingabók á árinu 2016:
Harpa Magnadóttir fyrir þýðingu sína á bókinni 172 tímar á tunglinu eftir norska rithöfundinn Johan Harstad – útg. Björt.
Ingibjörg Hjartardóttir fyrir þýðingu sína á bókinni Annað land eftir sænska rithöfundinn Håkan Lindquist – útg. Salka
Lemme Linda Saukas Ólafsdóttir fyrir þýðingu sína á Einhver Ekkineinsdóttir eftir eistnesku skáldkonuna Kåtlin Kaldmaa – útg. Bókstafur
Halla Sverrisdóttir fyrir þýðingu sína á bókinni Innan múranna eftir bandarísku skáldkonuna Nova Ren Suma – útg. Björt.
Guðni Kolbeinsson fyrir þýðingu sína á Norn eftir dansk/sænska tvíeykið Kim Fupz Aakeson og Rasmus Bregnhöi – útg. Mál og menning
Besta frumsamda barna- og unglingabókin á árinu 2016:
Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir fyrir Dodda – bók sannleikans – útg. Bókabeitan
Margrét Tryggvadóttir fyrir Íslandsbók barnanna – útg. Iðunn
Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir fyrir Ormhildarsögu – útg. Salka
Ragnheiður Eyjólfsdóttir fyrir Skuggasögu II: Undirheima – útg. Mál og menning
Hildur Knútsdóttir fyrir Vetrarhörkur – útg. JPV