Köfurum í Silfru fer fækkandi

Erlendir ferðamenn bíða eftir að röðin komi að þeim að …
Erlendir ferðamenn bíða eftir að röðin komi að þeim að kafa ofan í Silfru. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Reynsla okkar af reglunum um Silfru er góð en þær eiga þó eftir að slípast til,“ segir Einar Á Sæmundssen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Gripið var til ráðstafana eftir köfunarslys í Silfru fyrir nokkru, það er settar reglur um að færri mættu vera í gjánni hverju sinni. Nýju regluverki verður fylgt eftir með reglubundnu eftirliti, það er tilviljanakenndum skyndiskoðunun á vettvangi.

„Við sjáum samt núna að köfurum hefur fækkað talsvert en snorklararnir eru ámóta margir og var. Hugsanlega hefur fólk sem er ekki fært í köfun fært sig yfir í snorklið,“ segir Einar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert